Skattaparadís

Þegar Panamaskjölin komust í fjölmiðla og myndir af íslenskum ráðherrum voru dregnar upp í blöðum og á skjám út um allan heim, skammaðist þjóðin sín. Báðir eru þó enn á Alþingi Íslendinga, annar formaður stjórnmálaflokks en hinn fjármálaráðherra og yfirmaður skattamála.

Við áttum heimsmet í fjölda kennitala í Panamaskjölunum. En við áttum hins vegar ekki heimsmet í úrvinnslu málanna enda of fátt starfsfólk hjá Ríkisskattstjóra og Skattrannsóknarstjóra til að takast á við þessi flóknu mál og tvíverknaður innbyggður í kerfinu. Samherjaskjölin eru einnig dæmi um flókin efnahagsbrot sem ná til margra landa.

Á meðan til eru skattaskjól og leiðir greiðar til skattsvika verður fé skotið undan skatti. Jafnvel þó að sam­fé­lagið skaff­i fyr­ir­tækjum vegi, hafn­ir, flug­velli, menntað starfsfólk, heil­brigð­is­þjón­ustu og lög­gæslu, þá virðast sumir samborgarar okkar telja að aðrir eigi að bera hitann og þungann af þeim fjárfestingum. Sumir eigendur fyrirtækja, jafnvel þeir sem fénýta auðlindir þjóðarinnar, virðast telja að gróði eigi að renna óskiptur til eigenda fyrirtækjanna.

Talið er að skattsvik séu um 80 -100 milljarðar króna á ári hverju hér á landi. Með bættu skatteftirliti og skattrannsóknum gæti stór hluti þeirrar fjárhæðar gengið til heilbrigðismála, menntamála, samgöngumála, húsnæðis- og barnabóta og til að draga úr skerðingum bótakerfisins og leysa fólk úr fátækrargildru.

Skattsvikarar vilja láta aðra bera sinn hlut af kostnaði við rekstur velferðarkerfisins, en njóta sjálfir góðs af því. Og stjórnvöld spila með, með veiku opinberu skatteftirliti. Auk þess veldur tvíverknaður því að of langur tími fer í rannsókn og fullvinnslu mála þannig að mál fyrnast eða sektir verða minni en ella.

Í stað þess að styrkja embætti Skattrannsóknarstjóra líkt og almannahagsmunir krefjast, ákváðu núverandi stjórnarflokkar nú á dögunum að draga tennurnar úr skattrannsóknum með því að renna embætti Skattrannsóknarstjóra undir Skattinn með mildari sektum fyrir skattsvik og óvissu um hver eigi að rannsaka alvarlegustu skattalagabrotin.

Þessari veikingu á skattrannsóknum mótmæltum við í Samfylkingunni harðlega og lögðum þess í stað til að embætti Skattrannsóknarstjóra yrði eflt og fengi ákæruvald til að styrkja og hraða vinnslu mála.

Fólk sem felur peningana sína og eignir fyrir Skattinum hefur tekið lögin í sínar hendur og sagt sig úr lögum við samfélagið.

Draumar okkar jafnaðarmanna og hugsjónir eru um velferðarsamfélag sem er fyrir alla. Það er hlutverk okkar að vinna gegn ranglæti og spillingu og verja almannahagsmuni gegn rótgrónum sérhagsmunum hér á landi.

 Greinin birtist fyrst í júní á vefnum visir.is