ESB fyrir almenning (grein skrifuð 2024)
Það eru gríðarlegir hagsmunir undir við inngöngu í Evrópusambandið. Við höfum siglt ólgusjó vegna krónunnar, sem leiðir okkur stundum upp í hæstu hæðir og svo aftur niður í öldudali. Þetta hefur ekki bara áhrif á rekstur fyrirtækja, heldur líka rekstur heimila sem þurfa að bera kostnaðinn af himinháum vöxtum og verðtryggingu. Ef Ísland gengi í Evrópusambandið og tæki upp evru myndu vextir lækka og verðtrygging verða úrelt og óþörf. Allt varðar þetta almannahag og framtíð fólks og atvinnulífsins hér á landi.