Hækkum atvinnuleysisbætur!

Hækkum atvinnuleysisbætur!

Um það bil 16.000 manns eru nú atvinnulausir og um 6.700 til viðbótar á hlutabótaleiðinni með  minnkuðu starfshlutfalli. Hver sá sem lendir í því að missa vinnuna verður fyrir miklu áfalli og það getur dregið dilk á eftir sér. Langtíma atvinnuleysi hefur ekki aðeins slæmar fjárhagslegar afleiðingar heldur einnig félagslegar. Atvinnuleitendur í árangurslausri atvinnuleit þurfa því ekki aðeins fjárhagslegan stuðning heldur einnig andlegan stuðning. Gæta þarf sérstaklega að börnum atvinnulausra.

Við sjáum ekki fyrir endann á afleiðingum faraldursins vegna COVID-19. Vonandi gengur hann yfir sem allra fyrst. Eitt vitum við þó. Þau sem missa vinnuna og fara á atvinnuleysisbætur verða að fá aukinn stuðning frá stjórnvöldum. Stjórnvöld virðast hafa mikinn skilning á stöðu fyrirtækja í vanda og á að þau þurfi að búa við einhvern fyrirsjáanleika í formi stuðnings frá ríkinu. Það þurfa heimilin líka þó minna hafi borið á skilningi ríkisstjórnarinnar á þeirri þörf.

Tölurnar tala sínu máli

Strax þegar fólk fer af uppsagnarfresti og á atvinnuleysisbætur sér það fram á fjárhagsvanda og erfiðleika við að ráða við skuldbindingar, t.d. í formi húsnæðislána. Það sér líka fram á að eiga erfitt með að leyfa börnum sínum að taka þátt í félagsstarfi sem kostar peninga. Þegar þriggja mánaða launatengdu tímabili lýkur magnast vandinn.

Ari Skúlason hjá hagdeild Landsbankans tók saman tölulegar upplýsingar um þetta og birti á vefnum landsbanki.is. Þar segir að meðallaun séu um 800.000 kr á mánuði. Tekjutengdu atvinnuleysisbæturnar sem fólk á rétt á í þrjá mánuði verða ekki hærri en 456.404 kr. á mánuði og grunnatvinnuleysisbætur sem taka við eru 289.510 kr. á mánuði. Augljóst er að heimili atvinnulausra verða fyrir gríðarlegu tjóni, með tilheyrandi afleiðingum. Þetta hefur svo margfeldisáhrif í samfélaginu því að um leið verður eftirspurn í hagkerfinu minni.

Dreifum byrðunum

Eigum við að láta þau sem voru svo óheppin að missa vinnuna vegna faraldursins taka allt tjónið á sig? Eiga fjölskyldur þeirra að líða fyrir faraldurinn? Nei auðvitað ekki. Við eigum að dreifa byrðunum.  Þannig samfélagi viljum við búa í.

Við þurfum strax að lengja réttinn til tekjutengdra atvinnuleysisbóta. Við þurfum líka að lengja réttinn til grunnatvinnuleysisbóta og hækka þær um leið. Að lágmarki ætti að lengja launatengda tímabilið í 6 mánuði og réttinn til atvinnuleysisbóta um ár til bráðabirgða. Grunnatvinnuleysisbætur ættu að hækka í 318 þúsund kr núna strax og fara í 333 þúsund kr 1. janúar 2021, og verða þannig 95% af lágmarkslaunum.

Tímabundnar eingreiðslur

Ef þau sem treysta á lífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun og einstaklingar á atvinnuleysisbótum fengju hærri greiðslur frá ríkinu myndi eftirspurnin í hagkerfinu aukast um leið, enda ekki rými fyrir sparnað á þeim bæjunum.

Ríkisstjórn Ástralíu ákvað strax þegar áhrif COVID-19 komu fram þar í landi að lífeyrisþegar og atvinnulausir fengju sérstaka eingreiðslu ofan á lögbundnar greiðslur. Þetta eru 550 ástralskir dollarar hálfsmánaðarlega til 24. september í ár og 250 dollara frá 25. september -31. desember. Þetta gera Ástralir til að bæta stöðu heimila í fjárhagsvanda en einnig til að auka eftirspurnina í hagkerfinu.

Tökum Ástrali okkur til fyrirmyndar í þessum efnum.

Greinin birtist í Kjarnanum.