Grímulaus sérhagsmunagæsla

Meginhlutverk Alþingis er að setja landinu lög og gæta almannahagsmuna gegn sérhagsmunaöflum. Máttur sérhagsmunaafla getur verið mikill og rödd þeirra hávær eins og sjá má á forsíðu Fréttablaðsins í dag 30 mars. Þar birtist framkvæmdarstjóri SA með þann boðskap helstan að Samkeppniseftirlitið sé ekki nægilega leiðitamt við stærstu fyrirtæki landsins. Af þeim sökum verði Alþingi að kalla eftir sérstakri stjórnsýsluúttekt á stofnuninni, en stofnunin telur ríflega 30 manns. Minna mætti það ekki vera.

 Tilefni þessa neyðarkalls SA til okkar alþingismanna er sú staðreynd að Samkeppniseftirlitið, ásamt skipuðum kunnáttumanni með samruna Festi og N1 (nú Festi), hefur knúið á um að sátt sú sem fyrirtækið gerði við Samkeppniseftirlitið við samruna félaganna skuli fylgt í hvívetna.

 Sáttin

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins leiddi til þeirrar  niðurstöðu að samruninn hefði veruleg og skaðleg áhrif á samkeppni á matvöru- og eldsneytismörkuðum. Til þess að takmarka eða koma í veg fyrir tjón á samkeppni og til hagsbóta fyrir neytendur, var gerð sérstök „sátt“ á milli Samkeppniseftirlitsins og N1 og Festi.

 Samkvæmt sáttinni þarf fyrirtækið að uppfylla tiltekin skilyrði svo koma megi í veg fyrir tjón á samkeppni. Tjón sem almenningur sem verslar við fyrirtækið bæri með hærra vöruverði. Fyrirtækið hefur augljóslega ekki staðið við efni og skilyrði sáttarinnar þar sem Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að taka það til sérstakrar rannsóknar vegna brota á sáttinni.

 Þessi ákvörðun um rannsókn stofnunarinnar er  tekin á grunni þess eftirlits sem skipaður kunnáttumaður hefur sinnt. Þeim mun meiri mótþrói sem fyrirtækið sýnir því að vinna samkvæmt sáttinni þeim mun meiri þurfa afskipti kunnáttumanns að vera.

 Það vekur einnig athygli að lífeyrissjóðir eiga nærri 2/3 hlutafjár í fyrirtækinu. Það er því eðlilegt að þeir séu spurðir um hvort þeir telji þessa hegðun forsvarsmanna fyrirtækisins í samræmi við markmið lífeyrissjóðanna. 

Ávinningur hluthafa félagsins

Til þess að setja þetta mál í stærra samhengi að þá lætur nærri að hlutabréfaverð í Festi á skipulögðum markaði í Kauphöll hafi tvöfaldast frá því að samruninn var staðfestur árið 2018. Markmiðið um að auka virði hlutafjár hefur tekist svo um munar.

Pólitísk áhrif

Það er sjaldgæft að hagsmunagæsla í þágu sérhagsmuna skuli birtast jafn grímulaus og með neyðarkalli framkvæmdarstjóra SA í Fréttablaðinu. Sami framkvæmdarstjóri og  hefur opinberlega sagt að fátt sé mikilvægara en að verkalýðshreyfingin sýni samhug með fyrirtækjum þegar á móti blæs, svo sem í þeim heimsfaraldri sem nú gengur yfir.

Ástæða þessa neyðarkalls SA er að menn í forsvari tiltekinna stórfyrirtækja eru afar ósáttir við að lögregla markaðarins, Samkeppniseftirlitið, skuli ekki vera nægilega leiðitöm í störfum sínum gagnvart þeim.

 Það verður því fróðlegt að sjá og fylgjast með framhaldi málsins. Einkum því hvort Sjálfstæðisflokkurinn muni taka undir kvartanir SA og einnig hvað aðrir stjórnmálaflokkar gera.

 Þá munum við sjá hvaða stjórnmálaflokkar eru í raun að gæta almannahagsmuna eða hvort sérhagsmunagæsla endurspegli betur eðli þeirra. Það verður því afar fróðlegt að fylgjast með hvernig stjórnmálaflokkar bregðast við neyðarkalli sérhagsmunagæsluaflanna. Samfylkingin mun ekki taka þátt í ákalli SA um að veikja Samkeppniseftirlitið. Samkeppniseftirlitinu er ætlað að standa vörð um hag almennings í landinu.

 Greinin birtist fyrst á vefnum visir.is 30. mars 2021